Guðmundur Thoroddsen

 
 

Laugardaginn 30. ágúst 2008 opnar Guðmundur Thoroddsen sýninguna:
Ísbjörn, farðu heim!


Guðmundur Thoroddsen er fæddur í Reykjavík 1980. Hann lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og hefur unnið að myndlist síðan. Guðmundur hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis s.s. í Svíþjóð, Finnlandi, Berlín og Salzburg og á einnig tvær einkasýningar að baki, Rjómaísland í 101 gallerí árið 2007 og Neðangarðs í Íbíza Bunker nú í sumar.
Þetta verður í þriðja skipti sem Guðmundur vinnur að stórri veggmynd en einhverjir gætu munað eftir pixlaðri mynd af kind á vegg við Kolaportið sem hann vann í samstarfi við kollega sinn árið 2003.