Sigurlín M Grétarsdóttir

 
 

HVERFUL NÁTTÚRA

Sigurlín M Grétarsdóttir- Lína opnar sýninguna " HVERFUL NÁTTÚRA" á Veggverk á Akureyri laugardaginn 10 maí.

Á Veggverk ætlar Lína að mála röndótt þrívíddarverk sem maður getur ímyndað sér að sé einskonar landslag. Þar er hún að fjalla um hvað við mannfólkið erum að fjarlægast náttúna þar sem má túlka þjóðfélagið í dag sem hálfgerðan sýndarveruleika.

,, Ég er að fjalla um hve hverful náttúra okkar er og hver birtingarmynd
hennar er í mannskepnunni og hvað hún er síbreytileg. Hvernig
sýndarveruleiki mannsins endurspeglar náttúru okkar og að maðurinn hverfur meira á vit sýndarveruleikans.

Náttúran sjálf er hverful og kröftug. Við höfum reynt að beisla hana um leið og við lifum í sátt og samlyndi við hana. Er sýn okkar á stórkostlega náttúruna að hverfa á vit sýndarveruleikans? Erum við ennþé náttúrubörn eða börn sýndarveruleika og eigin hverfulleika? Getum við virkjað okkar innri náttúru í stað þess að fórna náttúru landsins?"

Lína útskrifaðist af fagurlistadeild Myndlistarskólans á Akureyri 2007. Þar á undan hafði hún stundað nám við Iðnskólann í Hafnarfirði í 3 ár á
hönnunarbraut og útskrifaðist þaðan sem tækniteiknari.

Lína er annar eigenda DaLí Gallery á Akureyri ásamt listakonunni Dagrúnu
Matthíasdóttur.